Búðu til uppsagnarbréf og reiknaðu uppsagnarfrestinn þinn
Það er mikilvægt að þú þekkir þinn rétt þegar kemur að uppsögn, hvort sem þú segir upp eða færð uppsagnarbréf.
Starfskraftur öðlast lengri uppsagnarfrest við:
Starfsfólk sem hefur öðlast fjögurra til sex mánaða uppsagnarfrest skv. kjarasamningi getur sagt starfi sínu lausu með þriggja mánaða fyrirvara, en að öðru leyti er uppsagnarfrestur gagnkvæmur.
Atvinnurekanda ber að greiða áunnið ógreitt orlof við starfslok, ásamt orlofs- og desemberuppbótum í samræmi við starfstíma og starfshlutfall. Áunnar uppbætur skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Skylt er að vinna lögbundinn uppsagnarfrest, nema um annað sé sérstaklega samið. Allar uppsagnir skulu vera skriflegar og gerðar á sama tungumáli og ráðningarsamningur starfskrafts. Að jafnaði þarf hvorugur aðili að rökstyðja ákvörðun sína um uppsögn, nema í tilvikum þar sem uppsagnarvernd er tiltekin í lögum.
Starfsfólk á rétt á viðtali um starfslok sín og ástæður uppsagnar. Beiðni um viðtal skal koma fram innan fjögurra sólarhringa frá því uppsögn er móttekin og skal viðtal fara fram innan fjögurra sólarhringa þar frá. Starfskrafturinn getur óskað þess, að loknu viðtali eða innan fjögurra sólarhringa, að ástæður uppsagnar séu skýrðar skriflega.
Fallist atvinnurekandi ekki á ósk um skriflegar skýringar á starfskraftur, innan fjögurra sólarhringa, rétt á öðrum fundi með atvinnurekanda um ástæður uppsagnar að viðstöddum trúnaðarmanni sínum eða öðrum fulltrúa stéttarfélags síns.